Kynnstu þessari 100% náttúrulegu yngingartækni sem Hollywood trúir á!

Sigurvegari alþjóðlegra, virtra fegrunarverðlauna og fyrir að ná ótrúlegum árangri. Fegrunarmeðferðir án inngrips með sýnilegum árangri, á borð við lýtiaaðgerð.

Engin furða að Dermatude sé vinsæl meðal þeirra ríku og frægu viðskiptavina nafntogaðra stofnana um heim allan. Frá fínum læknastofum í New York og Chicago að frægum fegrunar- og heilsulindum í London, Tokyo og Australíu og allt þar á milli.

Þekktar stofnanir um heim allan bjóða árnangursríkar Dermatude Meta Therapy meðferðir, finndu eina nálægt þér á vefsíðu okkar.

Sést í..

Tískutímaritum Marie Claire, Nouveau, LINDA og Beau Monde.

Halló Hollywood

Frægir treysta Dr. Lanver fyrir húðinni sinni á stofu hans á Rodeo Drive í Hollywood. Dermatude Meta Therapy eru oft bókaðar, frá 2014.

Fullkomin pörun

Lúxus, vellíðan og Dermatude eru fullkomin pörun: Dermatude Meta Therapy meðferðir eru aðgengilegar í 4 af hinum rúmgóðu og friðsælu Equinox Clubs í Chicago.

NY elskar Dermatude

New York búar er aðdáendur! Medicla Aesthetic NYC Rejuvenation Clinic finnst Dermatude Meta Therapy passa fullkomlega í meðferðardagskránna sem snýst öll um meðferðir án skurðaðgerða og náttúrulegan árangur.

Viðskipti mæta fegurð

Dermatude er þekkt í yfir 35 löndum um allan heim. Dreifingaraðilar okkar velja Dermatude vegna ávinnings viðskiptavina og mikilli viðskiptatækifæra fyrir sjálfan sig. Sjö af okkar dreifingaraðilum segja frá hvað það er sem gerir Dermatude einstakt og af hverju það er svona frábært að vinna fyrir merkið.

Trish Care, Dermatude UK – „Engin eftirköst, 100% árangur“

„í Bretlandi er mikil samkeppni innan fegrunar. Frá sjónarhóli viðskiptavinar er Dermatude framúrskarandi val. Það fyrsta sem kemur upp í huga þeirra er: hvað þarf ég að leggja út fyrir þessu? Hverskonar árangur fæ ég? Munu viðskiptavinir mínir koma aftur? Fæ ég ágóða af þessari fjárfestingu? Dermatude býr yfir einstökum vörum, Dermatude hefur meðferðina. Viðskiptavinurinn þarf ekki einu sinni að hafa áhyggjur af að selja meðferðakúr fyrirfram; að viðskiptavinur muni koma aftur til að bóka eftir eina meðferð. Það er nákvæmilega það sem þeir eru að leita eftir. Að hafa eitthvað þessu líkt, sem er svona gott og þurfa ekki að vera ýtin varðandi það, það er þar sem að Dermatude stendur upp úr. Og auðvitað, árangurinn. Árangurinn segir allt sem segja þarf.“

Nelly Kirschner, Dermatude USA – „Þú færð fjárfestingu þína strax til baka“

„Fyrirtæki ætti að velja Meta Therapy af því það virkar. Allt frá röðum meðferða, nákvæmri þjálfun, frábærum vörum til að taka með heim. Þetta er heildarlausn. Þú færð yfirmáta mikinn stuðning, allt markaðsefnið sem þú þarft til að gera viðskiptin farsæl. Fjárfestingin skilar sér strax aftur til viðbótar við tekjur sem koma samstundis. Hver vill það ekki?“

Liz McGowan, Dermatude Australia – „Þetta hefur breytt lífi okkar“

„Við vorum að leita að nýrri yngingarmeðferð fyrir húðina, leituðum og leituðum, og fundum þessa ótrúlegu Dermatude meðferð. Við erum svo hamingjusöm að við fundum hana þar sem hún hefur breytt lífi okkar. Við völdum Dermatude af því að það er allt í einum pakka og árangurinn er alveg ótrúlegur. Það er það sem við óskuðum okkur og það sem við óskuðum fyrir viðskiptavini okkar.“

Farah Bourakadi, Dermatude Belgíu – „Líkist meira lækningameðferð með hámarks árangri“

Ástæðan fyrir því af hverju að stofa ætti að kjósa Dermatude er vegna virkilega mikils stuðnings við markaðssetningu. Hægt er að vera með einstakt sölutilboð sem fagaðili Meta Therapy sem er einnig svo mikilvægt fyrir viðskiptavininn. Og getur boðið frekari lækningameðferð með hámarks árangri.“

Manuel Castillo, Dermatude Mexico – „Viðskiptatækifæri“

„Við völdum Dermatude þar sem að við komum auga á mikinn ávinning fyrir viðskiptavini okkar og einnig mikil viðskipti sem dreifingaraðilar. Þetta er virkilega góð meðferð og árangurinn sem fólk fær eftir meðferð er einnig frábær. Fyrst og fremst sem söluaðili er það vegna mikils hagnaðar sem fylgir. Í öðrulagi er þetta virkilega góð meðferð og hægt er að sjá árangur hjá fólki eftir meðferð.“

Patricia Shibley – Gauthier, Dermatude Canada – „Vá-þátturinn“

„Við tókum in Dermatude vörulínuna sem fínni meðferð. Að bjóða tækni sem gefur húðsérfræðingum tækifæri til að bjóða inngripsaðgerð sem tekur andlits og yngingameðferðir þeirra upp á hærra stig. Snyrtifræðingur vill vinna með Dermatude af því að það gefur þann árangur sem viðskiptavinirnir eru að leita eftir. Það tekur yngingarmeðferðina beint úr kassanum að geta boðið sársaukalausa inngripsmeðferð og vekur mikla hrifningu á öllum þeim meðferðum. Kanadabúar elska Dermatude!“

Ivan Adam, Dermatude Switzerland – „Milli snyrtifræðings og fagurfræðings“

Við höfum verið svo heppin að vera fyrsta landið, á eftir Hollandi, sem er dreifingaraðili Dermatude. Dermatude er einstakt vegna þess að það er heildarlausn. Dermatude er hentugt, það er auðvelt að læra það, auðvelt að vinna með það og það er sársaukalaus meðferð sem nær góðum árangri. Dermatude er að auka við sig söluna á snyrtistofum þar sem það er að bjóða nýjan hluta. Það er staðsett einhverstaðar milli snyrtifræðings og fegrunarfærðings. Það gefur meira virði og árangur er nærri efri mörkum markaðarins. Dermatude er yndislegt.“

Aud Grindland Kolstad, Dermatude Norway – „Ég vil alltaf hafa það besta“

„Ég hef verið í þessum bransa í 40 ár. Þetta er besta meðferðin fyrir línur, litabreytingar og húðáferð. Ég hef reynt mörg merki og meðferðir, ég vil alltaf hafa það besta. Viðskiptavinur kemur á stofu af því að hann vill árangur. Með Meta Therapy getur hann séð og fundið árangur eftir aðeins eina meðferð. Þess vegna vinnum við með Dermatude. Dermatude er auðveld, þægileg að vinna með. Viðskiptavinir verða ánægðir og snúa aftur!“

Undina Sigmundsdóttir, Dermatude Iceland – „Það besta af því besta“

„Dermatude er algjörlega ólíkt öllu því sem ég þekki. Það er einstakt. Fallegt merki og falleg meðferð. Árangur sést samstundis, sem er alveg magnaður. Þetta er það besta af því besta. Öll framkvæmd er 100% af fyrirtækinu bak við merkið. Meðferðin, vörulínan, markaðsefnið og stuðningurinn: allt hið glæsilegasta. Ég myndi ekki vinna með neitt annað merki til yngingar.“

Við leitum eftir dreifingaraðilum fyrir önnur lönd um heim allan. Ræðum möguleikana fyrir landið þitt!

Heildarlausn

Dermatude vinnur með heildarlausn. Þessi heildarlausn samanstendur af öllu sem tengist Dermatude merkinu fyrir fullkomna kynningu á nýjan markað.

Heildarlausn!

Dermatude Meta Therapy er ekki eingöngu meðferð, þetta er heildarlausn sem styður við og styrkir. Tækið, nálaeiningarnar, húðvörurnar, meðferðirnar og framkvæmd er að fullu innleitt með aðeins eitt markmið: að ná hámarks árangri til yngingar fyrir viðskiptavininn.

Lykill að markaðssetningu pakkinn

Markmiðið er að skapa vitundarvakningu gangvart merkinu með sterkri nærveru á netinu, markaðsherferðir á netinu, markaðsherferðir á prenti, nýjungar í vörumerkjahönnun og hágæða nýjungar í vörum, þess vegna býður Dermatude pakka að lykil markaðssetningu. Allt markaðsefni sem þarf fyrir herferðir í markaðssetningu á netinu og utan, auglýsingar í verslun, vefpósta, almenna pósta, verslunarsýningar, allt aðgengilegt fyrir þig. Á þennan hátt getur þú einbeitt þér að rekstrinum og sparað tíma, fyrirhöfn og peninga vegna kostnaðar markaðssetningar. Njóttu góðs af okkar reynslu okkar í gegnum árin af markaðssetningu og þú velur eingöngu úr öllu efni markaðssetningar tilbúnu-til-notkunar sem Dermatude býður uppá!

„Þessi nálgun virkar: það hefur sannað sig aftur og aftur af árangri stofnunum Dermatude víðsvegar um heiminn!“

Viðskiptafélagi þinn

Dermatude er viðskiptafélagi, ekki aðeins birgi fyrir vörur. Við höfum trú á alhliða samstarfi til að hámarka tilætlaðan árangur. Við munum deila eins mikilli þekkingu og mögulegt er til að ýta undir árangursrík viðskipti fyrir þig.

Heildarlausn

  • Byrjunarsett
  • Tæki
  • Vörur
  • Þjálfun
  • Markaðssetning
  • Ráðgjöf
Get in touch

Dermatude fagnar 5 ára velgengni

Frá tilkomu yngingarlausnar Dermatude Meta Therapy árið 2012 hefur orðið sprenging í vexti. Á 5 árum hefur Hollenska yngingarlausnin verið kynnt í 35+ löndum um heim allan. Stofnandinn, Saskia Kusters, segir frá því hvernig hún fékk hugmyndina, hvernig hún fór af stað og af hverju það hefur slegið svona í gegn!

„Ég fór af stað með Dermatude vegna þess að ég sjálf var að leita að einhverju til að berjast gegn öldrunarferlinu á áhrifaríkan en náttúrulegan hátt. Það eru margar áhrifaríkar meðferðir á markaðinum sem gefa árangur sem endist í nokkra daga. Ef þú vilt eitthvað varanlegra verður þú að fara í inngripsmeiri meðferð, sem var ekki það sem ég vildi. Sama hversu mikið ég reyndi þá gat ég ekki fundið meðferð sem mætti mínum kröfum. Ég var að leita eftir einhverju ákveðnu sem var ekki eins mikið inngrip en samt mjög áhrifaríkt fyrir húðina.“ Leit þessi gerði Saskiu ljóst að það var virkilegt skarð á milli fegrunarmeðferða og lýtaaðgerða. „ég vissi fyrir víst að margar konur vour að leita eftir samsvarandi meðferð eins og ég, án árangurs-alveg eins og ég.“ Árangurslaus leit hennar gerði Saskiu ákveðna í að gera breytingu. „Þannig fékk ég hugmyndina að Dermatude Meta Therapy. Lausn sem getur barist gegn öldrunarferlinu frá aldrinum 25 til 75 ára. Inngripsmeiri en hefðbundin húðmeðferð en ekki eins óvægin eins og skurðaðgerð.“

Kunnulegt andlit

Áralöng reynsla hennar hefur unnið með henni þar sem Saskia Kusters er kunnulegt andlit innan alþjóðlega snyrtigeirans. Sem fyrrverandi alþjóðlegur sölustjóri, þekkir hún snyrtimarkaðinn innanfrá.

„Eftir að ég lauk námi 1992 fór ég að vinna hjá stóru Hollensku snyrtuvörufyrirtæki með útflutning á alþjóðavísu. Ég byrjaði sem framkvæmdarstjóri sölu í útflutningsdeildinni. Í vinnu minni ferðaðist ég mikið og kynntist mörgu ólíku fólki, menningu og mörkuðum. Ég fór að þekkja ekki bara notendur varanna og tækjanna sem ég seldi á þeim tíma, heldur einnig fólkinu sem seldi vörurnar. Þannig að varðandi útflutning og alþjóðlega sölu var ég með mikla reynslu. Ég kynntist fólki með sömu ástríðu. Ég komst að því að þrátt fyrir mun á milli landa, bakgrunns og menningar er eitt sem þau eiga sameiginlegt á heimsvísu: berjast gegn öldrunarferlinu á eins áhrifaríkan hátt og mögulegt er.“

Saskia: „Ég hélt áfram að leita að meðferð sem hentaði snyrtibransanum, sem gæti gefið svipuð áhrif og á læknasviðinu. Svo miklu áhrifaríkari en hefðbundin fegrunarmeðferð. Ég vildi bjóða neytandanum mjög góða meðferð með góðum árangri án áhættu á óafturkræfum húðskaða.“ Á ferðalögum og fundum við tengiliði um heim allan árið 2010, með áralanga reynslu af sölu og markaðsþekkingu, var hugmyndin mótuð. „Ég spurði sjálfan mig spurninga eins og: hvað er nauðsynlegt í meðferð til að gefa viðskiptavini góðan árangur? Hvað þurfa stofur til að framkvæma og selja meðferðina? Og auðvitað, B2B-samskiptalega séð: hvað þurfa dreifingaraðilar til að selja hugmyndina í sínu landi?“

Fulla ferð áfram

Aftur heima fann Saskia viðskiptafélaga sem þekkti til í alþjóða snyrtigeiranum og fór á fulla ferð við að þróa Dermatude fyrir hana. „Þegar heildarlausn Dermatude varð tilbúin kynntum við hana fagaðilum snyrtibransans í Hollandi. Við vildum prufukeyra í 1 ár til að heyra reynslu fagaðila og neytenda áður en við myndum ákveða að fara á alþjóðavísu“, útskýrir stofnandinn. „Árangurinn á þessu fyrsta ári var ótrúlegur! Neytendurnir voru mjög ánægðir með árangurinn, snyrtifræðingunum líkaði ákaflega vel við hugmyndina. Þannig ákváðum við að fara á alþjóðavísu eftir 1 ár.“

Dermatude er með höfuðstöðvar í Hollandi, staðsett í suður Hollandi nálægt Þýskalandi og Belgíu. Einnig er systirfyrirtæki í USA sem er með sína eigin sölu- og þjálfunaraðstöðu í Orlando Flórída. Saskia: „Þetta er auðvitað ákveðið viðmið fyrir nálgun á alþjóðamarkað; Bandaríkin eru mjög mikilvæg fyrir okkur til að koma stefnunni út á markaðinn og sem hjálpar líka til við að kynna þau í Evrópulöndunum.“

Val við andlitslyftingu

Meta Therapy er skammstöfun fyrir Medical Esthetical Tissue Activation Therapy. Dermatude Meta Therapy er 100% náttúrleg yngingarlausn fyrir húðendurnýjun og húðfegrun innanfrá og út. Vélrænar Meta Therapy meðferðirnar örva kollagen og elastín framleiðslu húðarinnar, þannig næst húðendurnýjun innanfrá. Þetta er 100% náttúrlegt ferli. „Eftir 1 meðferð færðu samstundis árangur og í meðferðarkúr er árangurinn ótrúlegur. Dermatude Meta Therapy bætir heildar ástand húðarinnar, fínar línur og hrukkur dofna, húðholur verða fínni, húðin verður þéttari og endurheimtir teygjanleika sinn.“

Útskýring Saskiu: „Leiðandi stofnanir og húðsérfæðingar frá vísvegar um heiminn telja Meta Therapy áhrifaríka og örugga. Vegna einkaleyfisvörðu nálaeiningarinnar til meðferða er meðferðin örugg og húðþekjan helst heil. Ólíkt ýmsum tæknilegum aðferðum til húðendurnýjunnar. Tími sem fer í bata er enginn eftir Dermatude Meta Therapy sem er auðvitað mikill kostur fyrir viðskiptavininn.“

„Í Meta Therapy meðferðunum notum við okkar eigin Dermatude vörur. Uppskriftirnar eru þróaðar án ilmefna og parabena og það er okkur mjög mikilvægt. Við búum til 100% náttúrulega meðferð og höfum vörur til stuðnings sem gott er að nota heima við og til að lengja árangur meðferða.“ Einnig er húðlínan, Dermatude Skin Care, mjög þétt. „Það gerir það auðvelt fyrir snyrtisérfræðinginn að ráðleggja húðvörur til að nota heima og sem er auðvelt að koma inn í dagskránna.“

Grunnur að árangri

Frá 2012 tók Dermatude stökk í vexti. „Ekki aðeins á okkar Hollenska heimamarkaði heldur einnig á alþjóða snyrtimarkaðinum. Árlega bætast nýjir dreifingaraðilar við lista þeirra sem vinna með og selja Dermatude. Til að koma þeim af stað ferðast Saskia mikð. „Hver dreifingaraðili er þjálfaður af mér persónulega. Þannig að áðut en þeir fara af stað heimsæki ég þá, þjálfa þá með hugmyndina og verð viss um að þeir geti byrjað í sínu landi.“ Eftir tölunum að dæma þá virkar þessi nálgun. „Sem móðir 3ja drengja, einn 16 ára og hinir 15 ára tvíbura, er mjög mikilvægt að finna rétta jafnvægið milli reksturs og fjölskyldu. Ég er svo heppin að hafa möguleikan á að stóla á fjölskylduna þegar ég ferðast. Á þennan hátt get ég sýnt sonum mínum að þegar maður vinnur með ástríðu nær maður árangri í viðskiptum. Og að móðir þeirra er farsæl en samt mamma.“

„Ein ástæðna fyrir velgengni er vegna hugmyndarinnar sem er vel útfærð: fólk elskar meðferðina, árangurinn er stórkostlegur og fagaðilar elska lykilútfærslu hugmyndarinnar.“